01.03.2010 - 12:03
Krufningar
Melrakkasetur Íslands og Náttúrustofa Vestfjarða eru í samstarfi við Háskóla Íslands um krufningar á veiddum refum á Vestfjörðum. Um er að ræða tilraunaverkefni þar sem gerðar eru markvissar rannsóknir á veiddum refum í fjórðunginum og upplýsinga aflað, m.a. um stofngerð.
Vorið 2009 var verkefnið kynnt fyrir öllum sveitafélögum á Vestfjörðum og hefur Súðavíkurhreppur þegar hafist handa og þar söfnuðust hátt í fjörutíu dýr á sl. ári.
Vorið 2009 var verkefnið kynnt fyrir öllum sveitafélögum á Vestfjörðum og hefur Súðavíkurhreppur þegar hafist handa og þar söfnuðust hátt í fjörutíu dýr á sl. ári.







