Vefverslun Melrakkaseturs

bolur - kvennasnið
bolur - kvennasnið
« 1 af 5 »

Melrakkasetrið er með vefverslun í samvinnu við Vestfirskt Handverk og Galdrasýninguna á Ströndum og er hægt að panta vörur og greiða með greiðslukorti á vefnum og fá vöruna senda í pósti.

 

Í dag eru vörur okkar: svuntur, stuttermabolir og níðsterkir límmiðar, 8x8cm með skiltinu "Refur á veginum" / "Arctic fox on the road" en merkið er hannað af Melrakkasetri Íslands.

 

Svunturnar eru ótrúlega flottar og henta vel við villibráðahlaðborðið, jólabaksturinn, grillið og bara allt mögulegt !

Vönduð svunta með stillanlegu hálsbandi og vasa - kostar 3500 kr í vefverslun !

Límmiðinn kostar 500 kall og bolirnir 3000,- en þeir eru úr mjúku og þægilegu efni og aðsniðnir í kvenna og karlastærðum.

 

Vörur frá Melrakkasetrinu fást á eftirfarandi stöðum:

  • Galdrasýningin á Ströndum

  • Ævintýralandið Heydalur

  • Víkurbúðin Súðavík

  • Upplýsingamiðstöðin á Ísafirði

  • Náttúrugripasafnið í Bolungarvík

  • Hótel Edda Ísafirði (bara á sumrin)

 

Einnig er hægt að panta vörur með því að senda tölvupóst á melrakki@melrakki.is - þá þarf að gefa upp nafn og heimilisfang og greiða inn á reikning setursins. Texti þarf að fylgja með, nafn kaupanda og "keyptar vörur" - um leið og staðfesting berst um greiðslu verður varan send viðkomandi í pósti.

 

Bolirnir fást í kven- og karlastærðum og "unisex" - frá 7-8 ára og upp í XXL og kosta 3000 krónur - ágóðinn rennur til sýningar Melrakkasetursins og frekari framleiðslu minjagripa.

 

Svunturnar eru ein stærð en hálsmálið er stillanlegt.

 

Límmiðarnir kosta 500 krónur og þola að vera utan á bílum !!

Vefumsjón