15.06.2010 - 20:18

Gaggað í grjótinu - 2011

Mynd: Ágúst Atlason
Mynd: Ágúst Atlason
Gaggað í Grjótinu eftir Höllu Margréti Jóhannesdóttur - Ath. þetta er sönn saga !!
Aðgöngumiði aðeins 1500 kr. - tekið er við greiðslukortum

Gaggað í grjótinu verður frumsýnt þetta árið fimmtudaginn 2. júní kl. 20.00 og verður
sérstakt tilboð á þessa sýningu í tilefni dagsins: miðaverð er aðeins 1000 kr !

Næstu sýningar verða svo 23. júní, 7. júlí og 21. júlí auk þess sem ein sýning verður í ágúst. Miðaverð er 1500 kr.


Fimmtudaginn 2. júní kl. 20


Rebbakaffi er auðvitað opið þessa daga, nýtt bakkelsi og rjúkandi kaffi !!

Endilega bókið í síma 456-4922 => fyrstir koma fyrstir fá !!

Leikurinn er sérstaklega saminn fyrir Melrakkasetrið og þar er sögð saga refsins sem hefur búið hér lengur en elstu menn muna.


Í Gaggað í grjótinu fáum við einstakt tækifæri til að bregða okkur á greni með ónefndri refaskyttu sem kallar ekki allt ömmu sína. Saga skyttunnar er nefnilega ekki síður merkileg en skolla sjálfs. Meðan skyttan liggur og vaktar grenið styttir hann sér stundir og segir sögur af sjálfum sér og öðrum refaskyttum. Ævintýrin sem skyttunar hafa lent í í viðureigninni við melrakkann eru kannski lygilegar eða hvað...


Leikari er Elfar Logi Hannesson, Marsbil G. Kristjánsdóttir hannar leikmynd og búninga, höfundur og leikstjóri er Halla Margrét Jóhannesdóttir en það er Kómedíuleikhúsið á Ísafirði sem setur leikinn á svið í samstarfi við Melrakkasetur Íslands.


Gaggað í grjótinu var frumsýnt í Melrakkasetrinu í Súðavík miðvikudagskvöldið 16. júní kl. 20.


Miðasala á allar sýningarnar er í Melrakkasetrinu í Súðavík og í síma: 456 4922.

Vefumsjón