17.03.2011 - 14:29
Málstofa Spendýrafræðafélagsins
Þann 26. mars næstkomandi verður haldin Málstofa Spendýrafræðafélagsins kl. 15:30-16:30 í stofu N-130 í Öskju. Eru allir hvattir til að mæta og svala forvitninni
Eftirfarandi erindi verða á dagskrá:
1) Hvítabirnir á Íslandi (Ævar Petersen)
2) Fæðuvistfræði íslenska villiminksins (Rannveig Magnúsdóttir)
3) Áhrif bátaumferðar á sundhegðun hrefna innan fæðustöðva þeirra (Edda Elísabet Magnúsdóttir)
Nánari dagskrá og lýsingu á erindum málstofunnar er að finna í skjalinu hér til hægri
Með kveðju,
Stjórn Spendýrafræðafélagsins
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er og er skráð með athugasemdinni.







