01.02.2011 - 14:39
Hvar er Frosti?
Frosta var
sleppt þann 5. nóvember 2010 á fallegum vetrardegi. Hann hljóp um eins ánægður og hægt er að vera
og skoðaði alla hluti mjög vel. Hann fékk uppáhaldsmatinn sinn frá Murr (www.murr.is) hjá matmóður sinni og hljóp svo út í
buskann til að kíkja á ævintýradalinn.
Ekki hefur spurst til Frosta í talsverðan tíma og fólkið í Heydal hefur ekki séð hvort hann er að taka ætið sem þau setja út fyrir hann. Mýs, hrafnar og hundurinn gætu allt eins verið að kroppa í matinn. Fyrstu sjálfboðaliðarnir okkar koma um miðjan mars og verður þeirra verkefni einfaldlega að finna Frosta og staðsetja ferðir hans. Þau munu athuga hvort hann sé að para sig (þetta verður á pörunartímanum) og hvort hann sé ennþá sæmilega spakur og til í að vera með í vetrarmyndatökum þessa árs..? - nú vinnur hann á eigin forsendum. Við óskum fólkinu hins besta og vonumst eftir jákvæðum árangri þannig að Frosti geti orðið okkur öllum til gagns og gleði eins og áður.