01.02.2011 - 14:39

Hvar er Frosti?

« 1 af 3 »
Frosta var sleppt þann 5. nóvember 2010 á fallegum vetrardegi.  Hann hljóp um eins ánægður og hægt er að vera og skoðaði alla hluti mjög vel. Hann fékk uppáhaldsmatinn sinn frá Murr (www.murr.is) hjá matmóður sinni og hljóp svo út í buskann til að kíkja á ævintýradalinn.

Ekki hefur spurst til Frosta í talsverðan tíma og fólkið í Heydal hefur ekki séð hvort hann er að taka ætið sem þau setja út fyrir hann. Mýs, hrafnar og hundurinn gætu allt eins verið að kroppa í matinn. Fyrstu sjálfboðaliðarnir okkar koma um miðjan mars og verður þeirra verkefni einfaldlega að finna Frosta og staðsetja ferðir hans. Þau munu athuga hvort hann sé að para sig (þetta verður á pörunartímanum) og hvort hann sé ennþá sæmilega spakur og til í að vera með í vetrarmyndatökum þessa árs..? - nú vinnur hann á eigin forsendum. Við óskum fólkinu hins besta og vonumst eftir jákvæðum árangri þannig að Frosti geti orðið okkur öllum til gagns og gleði eins og áður. 
24.09.2010 - 15:30

Rjómi og gestir

Frosta lá svo á að rjóminn slettist á hann allan
Frosta lá svo á að rjóminn slettist á hann allan
Frosti er ekki illa haldin tófa þó það sé farið að harðna á dalnum hjá mörgum frændum hans.
Nú er vetrarfeldurinn farinn að kíkja í gegn um mjúkan yrðlingafeldinn, sérstaklega við skottið og í eyrum.
Frosti kann að spara aukabitana og hefur grafið út um allt grenið sitt ýmislegt ætilegt. Þar á meðal ungan grámáv (líklega hvítmávur) og heilan svartbak, sem sagt hefur verið frá áður. Nú er þar einnig grafið fiskmeti en rjómann þarf auðvitað að lepja strax. Meira að segja er kattamaturinn frá Murr „grafinn" eða eins og hægt er, Frosti dregur gumsið inn í steinrörið sitt og geymir þar.

Í dag komu krakkar úr Grunnskóla Bolungarvíkur í heimsókn, þau voru hress og kát enda voru þau að ljúka við samræmdu prófin. Frosti kann vel við krakkaheimsóknir og var hinn sprækasti, gróf m.a.s. upp frosinn fiskbita frá því í morgun og þóttist banhungraður þegar „matmamma" (Ester forstöðumaður) mætti á svæðið.

Nú eru komnar myndir af Frosta á heimasíðu heimsfrægs ljósmyndara sem heitir Rudi en hann sat um stund í gerðinu hjá þeim stutta og smellti af í gríð og erg. Við erum svo heppin að fá myndirnar hans til afnota en svo geta menn skoðað þær hér á síðunni hans Rudi.

Þórður Sigurðsson hefur einnig tekið nokkrar fallegar myndir af Frosta og má sjá þær ásamt myndum Rudis og okkar á hér myndasíðunni hans Frosta
17.09.2010 - 10:58

Myndatökur og heill máfur !

Frosti og máfurinn
Frosti og máfurinn
Í gær var Frosti aldeilis heppinn í matarmálum.
Eftir að hafa sporðrennt fimm pökkum af Murr kattamat lá drengurinn á meltunni og gat sig hvergi hreyft að því er virtist.
Kemur ekki einn af bestu vinum hans, Jón Ragnarsson, með fullvaxinn svartbak sem hann fann nýdauðan, fuglinn er á stærð við Frosta og ábyggilega ekki léttari en hann.
Nema hvað að Frosta fannst hann allt í einu vera orðinn banhungraður, lét eins og óður refur í hræinu og linnti ekki látum fyrr en hann var búinn að reyta sig í gegnum fiðurhaminn og kominn inn í kjöt. Þetta virtist hörkupúl en hann er nú orðinn vel stæltur af því að hlaupa hringinn með hundunum á hverjum degi auk þess að klifra reglulega upp í rjáfur.
Nema hvað, þegar komið var að honum Frosta í morgun, föstudag, þá sást hvorki tangur né tetur af máfsræflinum, ekki einu sinni goggur eða löpp. Grenið hans er þó allt sundurgrafið og næsta víst að hann hefur nú birgt sig sæmilega upp af gröfnu góssi. Vatnið var þó allt uppurið enda getur refur orðið þyrstur af svona miklu púli. Hann tók því fagnandi að fá ferskt vatn í morgunsárið og vegna óskaplegs matarmagns í gær fékk hann ekki annað en nagprik, sem hann hafði heldur ekki lyst á og gróf snyrtilega í einu horninu.
Já það er nóg að gera í haustverkunum - rop
09.09.2010 - 12:25

Frostablogg

Fanney og Frosti
Fanney og Frosti
Hann Frosti er yrðlingur af hvítu litaafbrigði sem hefur búið á Melrakkasetrinu í sumar. Frosti er munaðarlaus og var aðeins agnarsmár og ósjálfbjarga þegar hann kom til okkar fyrst. Fjölskylda Kjartans Geirs Karlssonar, fyrrverandi refaskyttu í Súðavík, tók hann þá að sér og hann braggaðist strax.
Frosti kom svo í heimsókn af og til og varð strax hvers manns hugljúfi. Um miðjan júlí varð þó ljóst að hann yrði að fá einhverja girðingu þar sem hann var farinn að hlaupa undir bíla og passaði sig ekki á umhverfinu. Hann flutti í gerðið sitt í lok júlí og varð strax heimavanur þar. Í gerðinu, sem er 16 fermetrar, er greni úr hlöðnu grjóti með torfþaki, steinrör og göngubrú úr rekaviði. Hann liggur gjarnan uppi á þakinu eða brúnni en þegar sólin skín og heitt er úti vill hann vera inni í greninu eða rörinu. Hann á hvalbein og bolta með bjöllu í, nokkra fuglsvængi og annað dót sem honum finnst gaman að leika sér að. Dótið og matinn sinn grefur hann hér og þar og er orðið ansi mikið um smáholur í gerðinu hans.

Frosti er á sérstökum fóðursamningi hjá Murr ehf í Súðavík og elskar kattamatinn frá þeim. Hann vex vel af honum enda er þetta kjarnafóður úr úrvals hráefni, með öllum helstu næringarefnum. Frosti fær einnig mat frá Kjartani og fjölskyldu, Jóni Ragnarssyni og fleiri velvildarmönnum sem koma með fisk, fugl og annað góðgæti handa þeim stutta.

Kjartan Geir Karlsson yngri, hefur hugsað vel um Frosta og ætlar núna að halda úti bloggsíðunni hans. Við fáum þá að fylgjast með lífinu hjá Frosta og sjáum hvernig hann breytist í útiliti eftir því sem hann fullorðnast og vetrarfeldurinn fer að koma fram hjá honum.
Fylgist endilega með - hér eða á Facebook
Vefumsjón