06.05.2009 - 14:08
Kvikmyndataka tókst vel
Kvikmyndagerðarmaðurinn Tobias Mennle og handritshöfundurinn Frank Drygala voru við tökur á náttúrulífsmynd í vetur. Þeir náðu frábærum myndum af mórauðum refum í vetrarbúningi á Vestfjörðum. Myndin þeirra er hluti af alþjóðlegu sjónvarpsverkefni sem stýrt er af NDR Natural History unit/Germany og fjallar þessi hluti um íslenska náttúru með melrakkann í fararbroddi sem einkennisdýr landsins.
Við fengum sendar nokkrar ljósmyndir frá Tobiasi til að setja á vefsíðuna okkar. Það er fengur að þessum myndum því afar lítið er til af mórauðum dýrum í vetrarbúningi og þessar eru alveg á heimsmælikvarða. Vielen danke Tobias !