22.02.2010 - 11:26

Ljósmyndasamkeppni Ferðafélags Íslands

Mynd Ármanns af melrakka í Þórsmörk
Mynd Ármanns af melrakka í Þórsmörk
Ferðafélag Íslands hefur valið fallega mynd af melrakka sem sigurvegara í ljósmyndakeppni félagsins. Myndina tók Ármann Guðjónsson í Þórsmörk á sl. sumri.
Við óskum Ármanni til hamingju með sigurinn enda glæsileg mynd af fallegu dýri frá skemmtilegu sjónarhorni.
Meiri upplýsingar er að finna á vef Ferðafélags Íslands www.fi.is 
16.02.2010 - 17:11

Melrakkinn flaggskip norðursins

Tófa hringar sig upp til að verjast vetrarkulda. Mynd: Böðvar Þórisson
Tófa hringar sig upp til að verjast vetrarkulda. Mynd: Böðvar Þórisson
Á alheimsfundi um loftslagsbreytingar sem haldinn var í Kaupmannahöfn haustið 2009 ákváðu alþjóða-náttúruverndarsamtökin (IUCN) að velja 10 tegundir sem fylgjast á sérstaklega með til að meta áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi heimskautasvæða. Samkvæmt listanum verður melrakkinn eitt af þessum mikilvægu tegundum sem þeir kalla flaggskip norðurheimskautanna. Flaggskipin gegna því hlutverki að endurspegla „heilsu" vistkerfa á heimskautasvæðum....
Meira
Vefumsjón