Melrakkasetur Íslands stofnað
Melrakkasetur Íslands ehf var stofnað á fundi þann 15. september 2007 í
félagsheimilinu í Súðavík. Á stofnfundinum var safnað 2.110.000 krónum
í hlutafé og eru hluthafar í Melrakkasetrinu 43 talsins.
Á
fundinum voru flutt tvö erindi, Ester Rut Unnsteinsdóttir líffræðingur
hélt fyrirlestur um sögu, atferli og líf refa á Íslandi og fór yfir
hugmyndir um hvernig starfsemi Melrakkasetursins yrði háttað. Jón
Jónsson, nýráðinn menningarfulltrúi Vestfjarða, hélt erindi um
þau tækifæri sem gefast með uppsetningu safna og setra. Til samanburðar
sagði hann frá uppsetningu Galdrasýningar á Ströndum og fór yfir þau
jákvæðu áhrif sem slíkt verkefni getur haft á samfélagið. Ómar Már
Jónsson sveitarstjóri Súðavíkurhrepps stjórnaði fundinum.
Í
stjórn Melrakkasetursins voru kosin Ómar Már Jónsson, formaður
stjórnar, Barði Ingibjartsson, Dagbjört Hjaltadóttir, Ester Rut
Unnsteinsdóttir, Þorleifur Ágústsson og til vara var kosinn Böðvar
Þórisson.
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er og er skráð með athugasemdinni.







