28.02.2011 - 10:07
Færandi hendi
Góðir gestir komu á fund stjórnar Melrakkaseturs Íslands á dögunum, þeir
Sigurður Jónsson og Rúnar Óli Karlsson hjá Borea Adventures. Þeir afhentu
formlega styrk frá fyrirtæki sínu til Melrakkasetursins, í gegnum 1% For The
Planet en þeir hafa heitið því að ánefna setrinu 1% af ársveltu fyrirtækis
síns. Stjórnarmenn þökkuðu kærlega fyrir stuðninginn og þóttu þeir Borea menn
sýna afar mikla velvild með því að velja að styrkja Melrakkasetrið með þessum
hætti. Hvaða fyrirtæki sem er, í hópi þeirra fjölmörgu sem eru á lista 1%,
getur ákveðið að styrkja Melrakkasetrið en ferlið til að hljóta samþykki 1% er
flóknara fyrir þiggjendur en gefendur af augljósum ástæðum. Borea Adventures
er, ásamt Melrakkasetrinu fyrsta íslenska fyrirtækið sem fer á lista 1% For The Planet og geta
valið úr um þrjú þúsund verkefnum af lista til að styrkja með 1% af ársveltu
sinni. Við erum því afar þakklát þeim Borea mönnum fyrir framlag þeirra til
okkar verkefnis.







